Losun á brúnu tunnunni

Af óviðráðanlegum orsökum hefur ekki verið hægt að tæma brúnu tunnuna, með lífrænum úrgangi, í þessari viku líkt og sorphirðudagatal gaf til kynna.  Úr þessu verður bætt í dag, eftir hádegi, og á morgun laugardag.

Eru íbúar beðnir velvirðingar á þessari töf og með von um að þetta hafi ekki valdið þeim miklum vandræðum.