Lokasýning Grunnskólans

Frá sýningu hópsins á Þjóðleik síðustu helgi (Myndina tók Vigdís Jakobsdóttir)
Frá sýningu hópsins á Þjóðleik síðustu helgi (Myndina tók Vigdís Jakobsdóttir)
Nemendur í Grunnskóla Fjallabyggðar sýna síðustu sýningu á leikverkinu Irisi eftir Brynhildi Guðjónsdóttur og Ólaf Egil Egilsson, í Tjarnarborg sunnudaginn 17. apríl  kl. 16:00 Um er að ræða nýtt verk sem skrifað var sérstaklega fyrir Þjóðleik en það er  samstarfsverkefni Þjóðleikshúsins og ýmsa leikhópa á Norðurlandi og fór fram síðastliðna helgi á Akureyri. Það eru unglingar í leiklistarvali grunnskólans sem flytja verkið.

Miðaverð er 1000 krónur fyrir fullorðna en frítt fyrir börn 16 ára og yngri.  
Athugið að þessi sýning  er ekki við hæfi ungra barna.