Samsýning í Listhúsi Fjallabyggðar í Ólafsfirði og Ráðhúsinu á Siglufirði, Dagana 2. - 5. maí í Ólafsfirði og 7. - 10. maí á Siglufirði
Sýningin hefst í Ráðhúsinu á Siglufirði í dag (fimmtudaginn 7. maí) kl. 14:00.
Sýnendur frá Ólafsfirði
Myndlistarkonan Garún, Guðrún Þórisdóttir, leirlistakonan Hófý,
Hólmfríður Arngrímsdóttir og Kristjana Sveinsdóttir myndlistarmaður.
Sýnendur frá Siglufirði: Starfsmenn Iðju-Dagvistar, handverkskonur í
Kvennasmiðjunni, félagar í Sjálfsbjörgu, handverkskonur í Galleríi
Sigló, listakonan Abbý, Arnfinna Björnsdóttir
Samsýning í FjallabyggðHátíðin hefst í Ólafsfirði 2. maí í Listhúsi Fjallabyggðar með samsýningu sem verður opin til 5. maí.
Sama sýning verður á Siglufirði dagana 7. - 10. maí í Ráðhúsinu.
Sýningarnar verða opnar á báðum stöðum laugardaga og sunnudaga frá kl.
13-17 og virka daga frá kl. 14 -18. Listahátíðin.
List án landamæra verður haldin í sjötta sinn árið 2009 og verður nú
haldin í fyrsta sinn í Fjallabyggð. Á hátíðinni hafa fatlaðir og
ófatlaðir unnið saman að ýmsum listtengdum verkefnum með frábærri
útkomu sem hefur leitt til aukins skilnings manna á milli með ávinningi
fyrir samfélagið allt. Ákveðið var að gera þetta að árlegum viðburði
en sífellt fleiri þátttakendur og áhorfendur bætast við á hverju ári.
Sýnileiki einstaklinga með fötlun er mikilvægur í samfélaginu og eykst
með þátttöku þeirra í almennu menningarlífi. Þátttakendur í hátíðinni
gefa góða mynd af því fjölbreytta og kröftuga listalífi sem hér þrífst.
Hæfileikafólk er á hverju strái en stundum skortir tækifæri fyrir það
til að koma sér á framfæri. List fatlaðs fólks er því miður ekki nógu
áberandi í almennu menningarumhverfi. List án landamæra stuðlar að því
að breyta því og samstarf og opnun á milli hópa og ólíkra einstaklinga
leikur þar stórt hlutverk. List án landamæra leggur áherslu á að
fatlaðir taki þátt í listviðburðum sem sýnendur en einnig að hvetja til
þess að þeir njóti sem áhorfendur. Áhersla er jafnframt á að atburðir
séu af ýmsum stærðargráðum. Það þýðir að reynt er að auka þátttöku
fatlaðra listamanna á viðurkenndum sýningarstöðum jafnframt sem og að
hvetja fólk til þess að standa fyrir litlum atburðum, þannig að fleiri
hafi færi á þátttöku.
Karítas Skarphéðinsdóttir Neff - fræðslu- og menningarfulltrúi