List fyrir alla í Grunnskóla Fjallabyggðar

Danski tónlistarmaðurinn Rune Thorsteinsson heimsótti Grunnskóla Fjallabyggðar í dag 13. september í tengslum við verkefnið List fyrir alla og fengu nemendur skólans að klappa, stappa og músísera með Rune.

Rune býr í Kaupmannahöfn þar sem hann starfar sem tónskáld, flytjandi og kennari og semur nýja tónlist úr ólíkum stíltegundum og menningarheimum. Hann leggur mikla áherslu á samskipti við áhorfendur hvort sem er á tónleikum eða í gegnum tónlistarsmiðjur en hugmynd hans er að kynna börnum og fullorðnum fjölbreyttar og skapandi leiðir í tónlist. Rune vinnur með börnunum í gegnum tónlist með rytma, samhæfingu, ólíkum blæbrigðum, spuna og stjórnun.

Á sama tíma og Rune er í Fjallabyggð fer fram ráðstefnan “Menningarlandið á Dalvík” um barnamenningu á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins. 

List fyrir alla

List fyrir alla er listverkefni á forræði mennta- og menningarmálaráðuneytisins og er ætlað að velja og miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Höfuðáhersla er lögð á list fyrir börn og list með börnum.

Nánari upplýsingar á heimasíðu List fyrir alla www.listfyriralla.is

List fyrir alla

Fleiri myndir frá heimsókninni eru aðgengilegar hér.