Líkamsræktir loka, fjöldatakmarkanir í sundlaugum

Sundlaugin í Ólafsfirði
Mynd: Magnús A. Sveinsson
Sundlaugin í Ólafsfirði
Mynd: Magnús A. Sveinsson

Líkamsræktir Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar verða lokaðar frá og með 5. október 2020. Samkvæmt auglýsingu heilbrigðisráðherra, sem væntanleg er í dag, skulu líkamsræktir loka frá miðnætti aðfaranótt 5. október. Sundlaugar mega taka á móti 50% leyfilegs fjölda. Gestir sundlauga í Fjallabyggð eru hvattir til að gæta að ítrustu sóttvörnum og 1 metra nándarreglu í búningsklefum, sturtum, pottum og í laug. Til að tryggja að gestir geti haldið 1 metra nándarreglu er miðað við að í búningsklefum séu ekki fleiri en 20 manns í einu.  50% af hámarksgestafjölda sundlauga í Fjallabyggð eru 68 manns.