Mynd: Samgöngustofa
Tilkynning til íbúa vegna drónaflugs í Ólafsfirði.
Á næstu dögum, nánar tiltekið þriðjudagskvöld 17. október, miðvikudag og miðvikudagskvöld 18. október munu starfsmenn frá umhverfisverkfræðistofunni ReSource International gera lekaleit á hitaveitu innan Ólafsfjarðar fyrir hönd Norðurorku.
Lekaleitin verður gerð með ómönnuðum loftförum (öðru nafni drónum) þar sem teknar verða hitamyndir úr +50 m hæð af bænum vegna mögulegra leka á hitaveitulögnum. Gögnin nýtast Norðurorku til að stöðva núverandi leka ásamt því að varpa ljósi á mögulegar viðhaldsþarfir.
Áætlað er að lekaleitin taki tvo daga og myndirnar eru teknar með hitamyndavél og úr þónokkurri hæð svo ekki er hægt að greina neina persónugreinanlega hluti á þeim. Gögnin munu afhentast Norðurorku og ekki fara í dreifingu út á við.
ReSource International mun leitast eftir því að framkvæma verkið með öryggi og hag íbúa að leiðarljósi og þakkar fyrirfram sýndan skilning og þolinmæði.