Leikfélag Fjallabyggðar æfir leikverkið Birgitta kveður

Við æfingar
Mynd af Facebook síðu Leikfélags Fjallabyggðar
Við æfingar
Mynd af Facebook síðu Leikfélags Fjallabyggðar

Leikfélag Fjallabyggðar hefur hafið æfingar á nýju leikverki undir nafninu Birgitta kveður eftir Guðmund Ólafsson. Áætlaðar eru 7 sýningar á leikverkinu og frumsýning verður föstudaginn 28. október nk. í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði.

Leikritið er nýtt gaman- og sakamálaleikrit og hefur hópurinn verið við æfingar síðan í september.