Leikfélag Fjallabyggðar frumsýnir Brúðkaup

Leikfélag Fjallabyggðar, sem til varð við sameiningu leikfélaganna á Siglufirði og Ólafsfirði, hefur verið að æfa nýtt leikrit, BRÚÐKAUP, eftir Guðmund Ólafsson, sem jafnframt er leikstjóri. 
Á síðasta leikári ákváðu leikfélögin að vinna saman að uppsetningu á öðru leikriti eftir Guðmund, sem nefndist STÖNGIN INN! Sú sýning hlaut frábærar viðtökur og var sýnd í Menningarhúsinu Tjarnarborg við mikinn fögnuð fjölmargra áhorfenda. Rúsínan í pylsuendanum var svo að sýningin var valin „áhugaverðasta áhugaleiksýningin árið 2013“ og fylgdi þeirri nafnbót að verkið var sýnt í Þjóðleikhúsinu í júní á síðasta ári fyrir troðfullu húsi.

BRÚÐKAUP fjallar, einsog titillinn bendir til, um brúðkaup. Herdís Eva er loksins gengin út og ætlar að ganga að eiga hann Bjarna Þór, sem er traustur starfsmaður Heimilistækja.
Því miður leggst séra Guðrún í lungnabólgu og verður þá að kalla til fyrrverandi sóknarprest, en hann er, því miður, ekki alltaf með allt á hreinu. En veislan ætti að ganga vel því veislustjórinn vinnur hjá Aríonbanka í Reykjavík og það er sko ekkert víst að tæknin klikki hjá Ella. En hvað með ömmu? Er hún lífs eða liðin? Hagar Alfreð móðurbróðir sér sómasamlega. Og hverjir koma í krumpugalla í brúðkaup?
Og svo er það STÓRA LEYNDARMÁLIÐ sem setur allt í uppnám.

Þetta er fjölmenn sýning því rúmlega tuttugu leikarar eru á sviðinu þegar mest er ásamt tríói tónlistarfólks.

Frumsýning á BRÚÐKAUPI verður föstudaginn 17. október klukkan 20:00 í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði. Önnur sýning sunnudaginn 19. október.

Leikfélagið ber titilinn Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2014.