Í ár fagnar Leikfélag Fjallabyggðar 10 ára afmæli. Af því tilefni var efnt til afmælissýningar Ert‘eeki að meinaða ! í Tjarnarborg helgina 7. og 8. október sl.
Vegna fjölda áskorana verður Leikfélag Fjallabyggðar með aukasýningu sunnudaginn 15. október nk. kl: 20:30
Leiksýningin Ert‘eeki að meinaða! í leikstjórn Guðmundar Ólafssonar býður gestum að gleðjast og rifja upp brot úr sögu félagsins sl. áratug en félagið hefur sett upp sex sýningar frá upphafi og unnið ómetanlegt starf í þágu menningar og lista í Fjallabyggð.
Miðapantanir í síma 849-5384 Vibekka og 863-2604 Guðrún