Laust starf sérfræðings á sviði loftslagsmála hjá Byggðastofnun

Erum við að leita að þér? Laust starf sérfræðings á sviði loftslagsmála hjá Byggðastofnun

Vilt þú taka þér leiðandi hlutverk í að móta aðlögun íslenskra sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga?

Byggðastofnun leitar nú að drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á loftslagsmálum til starfa við tveggja ára samstarfsverkefni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, Byggðastofnunar, Veðurstofu Íslands og Skipulagsstofnunar. Um er að ræða 100% starfshlutfall til tveggja ára.

Verkefnið snýr að því að hámarka aðlögunargetu íslenskra sveitarfélaga gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga og lágmarka um leið efnahagslegt tjón og neikvæð áhrif á íslenskar byggðir, innviði, samfélög og byggðaþróun. Sérfræðingurinn mun gegna lykilhlutverki í gagnaöflun, skipulagi og framkvæmd verkefnisins sem og mótun aðferðafræði og meginafurða verkefnisins, í nánu samstarfi við verkefnastjóra og aðra sérfræðinga. Afurðir verkefnisins verða m.a. aðlögunaraðgerðir á sveitarstjórnarstigi og leiðarvísir íslenskra sveitarfélaga til mótunar aðlögunaraðgerða vegna áhrifa loftslagsbreytinga. Fimm íslensk sveitarfélög munu taka þátt í verkefninu og kemur það í hlut sérfræðingsins að halda utan um samskipti við fulltrúa þeirra, sem og fulltrúa þeirra fagstofnanna og annarra aðila sem kalla þarf að borðinu, í nánu samstarfi við verkefnastjóra.

Helstu verkefni

  • Þátttaka í mótun aðlögunaraðgerða íslenskra sveitarfélaga og þátttaka í þróun og uppsetningu leiðarvísis um mótun aðlögunaráætlana og aðgerða á sveitarstjórnarstigi.
  • Samskipti og upplýsingagjöf til sveitarfélaga, viðeigandi fagstofnana og hagaðila.
  • Skipulagning og framkvæmd funda og viðburða innan verkefnisins.
  • Verkefnastjórn stöku verkþátta.
  • Gagnasöfnun, gagnagreining og úrvinnsla.
  • Kynningarstarf, þ.e. miðlun upplýsinga, fréttaritun og aðrar kynningar á verkefninu.

Menntunarog hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
  • Góð þekking og/eða reynsla í umhverfis- og loftslagsmálum.
  • Framúrskarandi samskipta- og skipulagsfærni.
  • Gagnalæsi og færni í framsetningu upplýsinga.
  • Reynsla og/eða menntun í verkefnastjórnun er kostur.
  • Góð þekking/reynsla innan opinberrar stjórnsýslu er kostur.
  • Góð greiningar- og tölfræðikunnátta er kostur.
  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Aðalskrifstofa Byggðastofnunar er í nýju húsnæði á Sauðárkróki en í samræmi við byggðastefnu stjórnvalda er möguleiki á að ráða í starfið óstaðbundið. Umsækjendur þurfa að tilgreina ósk um starfsstöð í umsókn. Viðkomandi mun einnig hafa aðgang að tímabundinni vinnuaðstöðu hjá Veðurstofu Íslands og/eða Skipulagsstofnun eftir samkomulagi.  Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsóknarfrestur er til og með 11. ágúst 2023. Umsóknum skal skilað á umsóknarform sem finna má á heimasíðu stofnunarinnar www.byggðastofnun.is. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Frekari upplýsingar um starfið veita Ragnhildur Friðriksdóttir, sérfræðingur og verkefnisstjóri á þróunarsviði ragnhildur@byggdastofnun.is,  eða Sigríður Elín Þórðardóttir forstöðumaður þróunarsviðs sigridur@byggdastofnun.is eða í síma 455 5400.

Auglýsinguna má nálgast á heimasíðu Byggðastofnunar sem og á Starfatorgi