Á kortavef Fjallabyggðar er nú hægt að sjá þær lóðir sem lausar eru til umsóknar. Á kortavefnum er einnig hægt að fá upplýsingar um stærð lóða og hámarks byggingarmagn samkvæmt deiliskipulagi. Ennþá er unnið að því að deiliskipuleggja nokkrar lóðir og verður þeirri vinnu lokið í lok árs.
Umsóknir lóða fara í gegnum Rafræn Fjallabyggð - íbúagátt þar sem umsækjandi skráir sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Tæknideild Fjallabyggðar veitir einnig frekari upplýsingar um lausar lóðir og deiliskipulag lóða í Fjallabyggð, í síma 464-9111 eða með tölvupósti á fjallabyggd@fjallabyggd.is.
Ívilnanir
Á 786. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar var samþykkt með vísan til heimildar í a-lið 8. gr. samþykktar um gatnagerðargjöld og sölu byggingaréttar í Fjallabyggð frá 4. júlí 2018 að fella tímabundið niður öll gatnagerðargjöld í Fjallabyggð. Tekur ákvörðunin þegar gildi og gildir til 31.12.2024.
Umsóknir, reglur um úthlutanir og gjaldskrár:
Gjaldskrá byggingarfulltrúa
Gjaldskrá þessi er sett af bæjarstjórn Fjallabyggðar með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 ásamt 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1607/2021 um byggingarleyfis- og þjónustugjöld byggingarfulltrúa Fjallabyggðar.
Samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar 15. desember 2022.
Gjaldskrá byggingafulltrúa 2023 (pdf)
Gjaldskrá 2023 í B-deild Stjórnartíðinda