Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012 – 2024 og umhverfisskýrslu. Sveitarstjórnir allra þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að skipulagstillögunni hafa samþykkt hana til auglýsingar, en sveitarfélögin eru þessi:
Grýtubakkahreppur, Svalbarðsstrandarhreppur Akureyri, Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit, Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð.
Breytingin á við endurskoðaða stefnu um flutningslínur raforku um skipulagssvæðið. Meginmarkmið eru óbreytt en sett eru eftirtalin undirmarkmið:
- Í aðalskipulagi viðkomandi sveitarfélaga skal gera ráð fyrir Blöndulínu 3 og Hólasandslínu 3.
- Hólasandslína 3, ný flutningslína með 220 kV spennu eða hærri, mun liggja frá Akureyri austur yfir Hólmana í Eyjafirði og yfir Vaðlaheiði í Fnjóskadal.
- Lega og útfærsla Blöndulínu 3, nýrrar flutningslínu með 220 kV spennu eða hærri milli Blöndustöðvar og Akureyrar, verður byggð á valkostagreiningu og umhverfismati sem framkvæmdaaðili (Landsnet) mun vinna í samráði við heimamenn, landeigendur og sveitarstjórnir. Lega og útfærsla verður ekki skilgreind nánar í svæðisskipulagi Eyjafjarðar heldur í aðalskipulagi viðkomandi sveitarfélaga.
- Tekið skal mið af þingsályktunum um stefnu stjórnvalda um lagningu raflína, sem samþykktar voru á Alþingi 28. maí 2015 (nr. 11/144) og 11. júní 2018 (nr. 26/248).
- Vegna nálægðar við þéttbýli á Akureyri, línuleiðar um Hólma Eyjafjarðarár, sem eru á náttúruminjaskrá, og nálægðar við Akureyrarflugvöll skal gera ráð fyrir að Hólasandslína 3 verði lögð sem jarðstrengur frá tengivirki ofan Akureyrar suður fyrir Akureyrarflugvöll og upp fyrir byggð í Kaupvangssveit.
- Nýta skal þá möguleika sem kostur er á m.t.t. tæknilegra og efnahagslegra forsendna til þess að leggja hluta Blöndulínu 3 sem jarðstreng t.d. vegna þrengsla við núverandi byggð og býli og/eða vegna skilgreindrar náttúruverndar þar sem það á við.
- Til þess að tryggja hámarksöryggi við Akureyrarflugvöll skal Kröflulína 1 (núverandi 132 kV loftlína) lögð í jörð sunnan flugvallarins á skipulagstímabilinu og Laxárlína (66 kV loftlína) lögð af þegar Hólasandlína 3 verður tekin í notkun.
- Til mótvægis við nýjar flutningslínur skal áfram unnið að breytingum á núverandi flutningslínum og dreifikerfi raforku, m.a. með því að leggja línur í jörð.
Í umhverfisskýrslu er gerð grein fyrir umhverfismati breytingarinnar.
Skipulagstillagan, sem auglýst er með vísan í 27. gr. og 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um um-hverfismat áætlana nr. 105/2006, mun liggja frammi á skrifstofum fyrrnefndra sveitarfélaga og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá og með 22. janúar 2020 til og með 6. mars 2020.
Á sama tíma verður tillagan einnig aðgengileg á vef Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, www.afe.is
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefst kostur á að gera athugasemdir við tillöguna áður en athugasemdafresturinn rennur út, eða eigi síðar en 6. mars 2020.
Athugasemdum skal skila skriflega til:
Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar
Hafnarstræti 91
600 Akureyri
eða á netfangið afe@afe.is.
Fram komi nafn, kennitala og heimilisfang sendanda.
Tillagan og umhverfisskýrslan liggja frammi í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24 á auglýsingatímanum eða til 6. mars nk.
Drög að skýrslu um breytingar vegna flutningslína raforku.
Umhverfisskýrsla.
Auglýsing (PDF)