Kvennahlaup ÍSÍ

Kvennahlaup ÍSÍ fer fram laugardaginn 13. júní. Hlaupið fer fram bæði í Ólafsfirði og á Siglufirði.
Fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ var haldið 30. júní árið 1990 í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ.

Markmið Kvennahlaupsins er að hvetja og styðja konur á öllum aldri til aukinnar heilsueflingar. Kvennahlaupið höfðar til allra kvenna þar sem hægt er að velja mislangar vegalengdir. Engin tímataka er í hlaupinu og því ekki hlaupið nema til persónulegs sigurs.

Kvennahlaupið er haldið sem næst kvenréttindadeginum 19. júní þar sem höfðað er til samstöðu kvenna. Innifalið í þátttökugjaldinu er Kvennahlaupsbolurinn og verðlaunapeningur.

Í Ólafsfirði er hlaupið frá íþróttamiðstöðinni kl. 11:00. Frítt í sund að loknu hlaupi.
Á Siglufirði er hlaupið frá Kaffi Rauðku kl. 11:00.
Þátttökugjald: 12 ára og yngri: 1.000 kr. 13 ára og eldri: 1.500 kr.