Keppendur Midnight Sun Race eru komnir til Siglufjarðar.

Á morgun kl. 18:00 verða keppendur í alþjóðlegu siglingakeppni Midnight Sun Race á Siglufirði ræstir. Erlendu skúturnar eru lagstar við bryggju á Siglufirði og setja svip sinn á bæinn. Þessi siglingakeppni er eina sinnar tegundar á Norður-Atlantshafinu. Keppnin er haldin á Jónsmessunni þegar er sólin á lofti allan sólarhringinn. Siglt verður frá Siglufirði og umhverfis Grímsey og til baka, samtals 75 sjómílur. Keppendur sigla því yfir Norðurheimsskautsbaug og fá vottorð uppá það. Áætlað er að keppendur verði komnir í mark fyrripartinn á sunnudaginn.

Mikil undirbúningsvinna liggur að baki keppninni, sérstaklega hvað varðar kynningu erlendis. Sigmar B. Hauksson hefur unnið að skipulagningu og kynningu keppninnar erlendis og væntir hann þess að keppnin verði eftirsótt í framtíðinni enda ein sinnar tegundar á svæðinu. Keppnin hefur þegar fengið umfjöllun í erlendum siglingablöðum og von er á erlendum blaðamönnum til að fylgjast með keppninni í ár.

Stefnt er að því að keppni þessi verði árlegur viðburður sem vaxi með hverju árinu og auki ferðamannastrauminn til Fjallabyggðar. Auk þess hefur verið unnið markvist að því síðastliðin tvö ár að kynna fyrir skútueigendum aðstöðu til vetrarlegu sem er til staðar á Siglufirði og þá þekkingu og þjónustu sem er á staðnum til viðgerðar og viðhalds á skútum. 

Hægt er að fá nánari upplýsingar um keppnina á heimasíðu hennar http://www.icesun.is