Karlakórinn í Fjallabyggð ásamt hljómsveit Tjarnarborg laugardaginn 4. maí nk.

Mynd: Karlakórinn í Fjallabyggð
Mynd: Karlakórinn í Fjallabyggð

Karlakórinn í Fjallabyggð ásamt hljómsveit verður með söngskemmtun í Menningarhúsinu Tjarnarborg laugardaginn 4. maí nk. undir yfirskriftinni GLEÐI LÉTTIR LUNDU. Tónleikar hefjast kl. 21.00.

Á söngskemmtuninni verður flutt fjölbreytt efnisskrá, hefðbundin karlakórslög, einsöngur, tvísöngur, þekkt dægurlög úr ýmsum áttum, lög úr kvikmyndum, smá kántrý, o.fl. o.fl.

Gestir kórsins verða hin frábæru Ronja og ræningjarnir!

Verð á tónleikana er 3.000 kr.

Allir velkomnir - góða skemmtun!