Jólatónleikar Tónskóla Fjallabyggðar

Jólatónleikar Tónskóla Fjallabyggðar 2013
Jólatónleikar Tónskóla Fjallabyggðar 2013
Nemendur og kennarar Tónskóla Fjallabyggðar verða með jólatónleika á fjórum stöðum í næstu viku. Fyrstu tónleikarnir verða á Hornbrekku kl. 14:30 þriðjudaginn 10. desember. Sama dag verða tvískiptir tónleikar í Tjarnaborg kl. 18:00 og 19:00. Miðvikudaginn 11. desember verða tónleikar í Siglufjarðarkirkju kl. 18:00 og síðustu tónleikarnir verða fimmtudaginn 12. desember kl. 14:30 á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar á Siglufirði. Lofað er léttri og skemmtilegri jóladagskrá og eru íbúar hvattir til að fjölmenna.