Jólastemning í Iðjunni

Jólastemning í Iðjunni þegar bæjarstjóri leit við á dögunum. 

Sigríður bæjarstjóri kíkti við í Iðjuna á Siglufirði á dögunum. Þar var gleðileg jólastemning, verið að baka jólasmákökur, föndra, búa til jólaskraut og jólavörur og söngurinn ómaði um allt hús. Hjá Iðjunni er hægt að kaupa ýmislegt sem ratað gæti í jólapakkann eða heim í stofu nú fyrir jólin. Íbúar og gestir eru hvattir til að kíkja við og njóta jólaandans sem þar ríkir.