Jólakvöld í miðbæ Ólafsfjarðar

Föstudagskvöldið 8. desember verður hið árlega jólakvöld haldið í miðbæ Ólafsfjarðar. Hefst það kl. 19:30 og stendur fram eftir kvöldi. Þá verður miðbærinn lokaður fyrir umferð ökutækja og hluti Aðalgötunar gerður af göngugötu.

Ýmis konar varningur verður til sölu í jólahúsunum, í Pálshúsi, Gallerý Uglu og smíðakompu Kristínar. Einnig verða Kaffi Klara og Kjörbúðin opin.
Jólasveinasafn Egils Sigvaldasonar verður til sýnis í Pálshúsi.

Tónlistarfólk kemur fram á svæðinu og einnig verður lifandi jólatónlist í Tjarnarborg eftir kl. 21:30

Fylgist með á Facebook síðu; Jólabærinn Ólafsfjörður

 Auglýsing til útprentunar