Í tilefni af hækkun framlaga í Kvikmyndasjóð Íslands bjóða íslenskir kvikmyndagerðarmenn, í samstarfi við
Kvikmyndamiðstöð Íslands og 18 sýningarstaði, landsmönnum í bíó helgina 22. – 24. mars.
Sýningar í Tjarnarborg verða eftirfarandi: (ATH. það er frítt inn en selt verður gos, nammi og
flögur)
- Föstudagskvöld kl. 20.30 Gauragangur
- Laugardagur kl. 16.15 (ath. breytt tímasetning) Hetjur Valhallar - Þór.
(Óskar Jónasson leikstjóri myndar verður viðstaddur)
- Sunnudagur kl. 13.00 Kurteist fólk
- Sunnudagur kl. 15.30 Eldfjall
- Sunnudagur kl. 18.00 Rokland
- Sunnudagur kl., 21.00 Borgríki
Landsmönnum boðið í bíó - Íslensk kvikmyndahelgi 22.-24. mars.
Í tilefni af hækkun framlaga í Kvikmyndasjóð Íslands bjóða íslenskir kvikmyndagerðarmenn, í samstarfi við
Kvikmyndamiðstöð Íslands og 18 sýningarstaði, landsmönnum í bíó helgina 22. – 24. mars. Fjölbreytt úrval íslenskra
kvikmynda verður sýnt víðs vegar um land og í einhverjum tilfellum verða leikstjórar eða aðrir aðstandendur viðstaddir sýningar og svara
spurningum að þeim loknum. Alls verða sýningar á 18 stöðum, þar af tveimur í Reykjavík – Háskólabíó og
Bíó Paradís. Sýningarstaðir voru valdir í samráði við menningarfulltrúa hvers landshluta og eftir aðstöðu til sýninga.
Frekari upplýsingar og dagskrá Íslenskrar kvikmyndahelgi má nálgast á miðvikudaginn á heimasíðu Kvikmyndamiðstöðvar
Íslands: www.kvikmyndamidstod.is
Sýningarstaðir:
Reykjavík (Bíó Paradís og Háskólabíó)
Akranes (Bíóhöllin)
Ólafsvík (Félagsheimilið Klif)
Hvammstangi (Selasetrið)
Sauðarkrókur (Króksbíó)
Blönduós (Félagsheimili Blönduós)
Ísafjörður (Ísafjarðabíó)
Patreksfjörður (Skjaldborgarbíó)
Ólafsfjörður (Menningarhúsið Tjarnarborg)
Akureyri (Borgarbíó)
Laugar (Laugabíó)
Raufarhöfn (Félagsheimilið Hnitbjört)
Vopnafjörður (Mikligarður)
Egilsstaðir (Sláturhúsið)
Seyðisfjörður (Seyðisfjarðarbíó)
Höfn í Hornafirði (Sindrabær)
Kirkjubæjarklaustur (Félagsheimilið Kirkjuhvoli)