Íris að taka við viðurkenningunni úr hendi Hjálmars Sveinssonar, borgarfulltrúa
Skipulagsverðlaunin 2014 fóru fram við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 26.nóvember sl.
Verðlaunin eru veitt annað hvert ár til sveitarfélaga, stofnana eða einkaaðila sem hafa gert vel á sviði skipulagsmála og lagt sitt af mörkum
til að bæta og fegra umhverfi í þéttbýli og dreifbýli með faglegri skipulagsgerð. Markmið verðlaunanna er að hvetja til
umræðu, auka skilning á skipulagsmálum og vekja athygli á því besta sem er að gerast á sviði skipulags á hverjum tíma.
Skipulagsverðlaunin eru annars vegar veitt fyrir skipulag, þ.e. skipulagstillögu eða staðfest skipulag og hins vegar fyrir sérstök og afmörkuð
verkefni í tengslum við skipulag, svo sem frumkvöðlastarf og nýbreytni eða miðlun upplýsinga um skipulagsmál, svo eitthvað sé
nefnt.
Íris Stefánsdóttir, tæknifulltrúi Fjallabyggðar hlaut nemendaverðlaunin að þessu sinni fyrir mastersritgerð sína í
Skipulagsfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands. Verkefnið ber heitið Ferðavenjur skólabarna í Reykjavík –
Áhrif hins byggða umhverfis á val ferðamáta.
Umsögn dómnefndar.
Var dómnefnd sammála um að hér væri á ferðinni áhugavert grasrótarverkefni. Það er samfélagslega mikilvægt að
hafa áhrif á lífsstíl og það að ganga í skóla er og verði virkur ferðamáti. Verkefnið var vel unnið og mikilvægt
skref í átt að sjálfbærri þróun og sjálfbæru skipulagi sveitarfélags.
Vill dómnefnd hvetja sveitarfélög til að huga að ferðavenjum barna við skipulagsgerð og benda á mikilvægi þess að fara
fótgangandi í skóla sé virkur ferðamáti.
Hægt er að nálgast ritgerðina
hér.
Íris Stefánsdóttir glöð með viðurkenninguna.