Mynd af: www.kfbolti.is
Leikmenn meistaraflokks KF voru með sektarsjóð sín á milli í sumar og ákváðu strax í upphafi að þeir fjármunir sem
myndu safnast yrðu gefnir í gott málefni.
Núna þegar tímabilið er að líða undir lok var komið að því að gera upp sjóðinn og ákváðu strákarnir
að kaupa og færa Iðju dagvist nýjustu gerð af spjaldtölvu að gerðinni Ipad ásamt tösku.
Eftir leikinn gegn Gróttu á laugardaginn mættu fulltrúar frá Iðjunni þær Hrafnhildur Sverrisdóttir og Kristín Andrea
Friðriksdóttir og tóku á móti tölvunni frá sektarnefndinni en hún var skipuð fimm fulltrúum frá meistaraflokki KF, Halldóri
Loga Hilmarssyni formanni, Agnari Sveinssyni meðstjórnanda, Milos Glogovac meðstjórnanda og fulltrúa útlendinga, Þórði Birgissyni rukkara og
Brynjari Harðarssyni oddamanni
Starfsfólk og notendur Iðjunar þakka kærlega fyrir gjöfina sem á eftir að koma að góðum notum.
Fréttin er unnin upp úr texta af www.kfbolti.is