Vegna jarðskjálftanna undanfarna daga vill Almannavarnanefnd benda íbúum Fjallabyggðar á að upplýsingar
um viðbrögð er að finna í Símaskránni bls. 14-21 og einnig á heimasíðu Almannadeildar
Ríkislögreglustjóra, www.almannavarnir.is og á netfang: almannavarnir@rls.is
Fyrir hönd Almannavarnanefndar
Ámundi Gunnarsson slökkviliðstóri,babusiglo@simnet.is s: 847-7825
Ingvar Erlingsson vettvangsstjóri á Siglufirði, ingvar_e@simnet.is s:899-9085
Ármann Viðar Sigurðsson vettvangsstjóri Fjallabyggð, armann@fjallabyggd.is s:864-1491
Þormóður Sigurðsson varaslökkviliðsstjóri Ólafsfirði, modi@simnet.is s:864-0898
Kristján Hauksson vettvangsstjóri Ólafsfirði, krihau@simnet.is s:892-0774
Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri sigurdur@fjallabyggd.is s: 894-5622
Hægt er að hafa samand við ofangreinda aðila og munu þeir aðstoða og leiðbeina íbúum eftir bestu
getu.
Einnig bendum við á frétt á vef Veðurstofu Íslands um að jarðskjálftahrinan í Eyjafjarðarál haldi
áfram:
http://www.vedur.is/um-vi/frettir/nr/2557
Jarðskjálftahrinan í Eyjafjarðarál heldur áfram
23.10.2012
Jarðskjálftahrinan sem hófst á laugardag syðst í Eyjafjarðarál heldur áfram. Mánudaginn 22. október, mældust allnokkrir
skjálftar á tímabilinu frá kl. 1:00 til 8:00 á svæði nokkru suðaustan við þann stað þar sem meginhrinan og 5,6 skjálftinn
voru staðsett. Þeir voru því heldur nær Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu. Stærstu skjálftarnir þar, um 3,9 að stærð, urðu
klukkan 5:25 og 5:32. Í gærkvöld (22. október) kl. 21:16 varð skjálfti af stærðinni 3,5 og í morgun (23. október) klukkan 5:27
mældist skjálfti af stærðinni 4,0 á svæðinu þar sem meginvirknin hefur verið og færðist hún því aftur til vesturs.
Skjálftarnir eru hefðbundnir brotaskjálftar á flekaskilum og engin merki sjáanleg um eldvirkni.
Úrvinnsla 5,6 skjálftans sýnir að um siggengisskjálfta er að ræða, sem er einkennandi fyrir sigdal eins og Eyjafjarðarál, en á
Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu má búast við misgengishreyfingum. Hvorki er hægt að segja fyrir um hve skjálftahrinan vari lengi né
útiloka að skjálftar stærri en 4 eigi eftir að verða.
Þessi hrina er við vesturenda Húsavíkur-Flateyjarmisgengisins og ekki er útilokað að hrinan hafi áhrif á spennu umhverfis misgengið.
Gliðnunin sem varð samfara Kröflueldum 1975-1984 varð til þess að spenna minnkaði á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu. Síðan þá
hefur spenna verið að hlaðast upp. Jarðskorpumælingar (GPS) á síðustu árum benda til þess að nægileg spenna sé til staðar
fyrir skjálfta af stærðinni um 6,8 (Metzger o.fl., 2011).
Stærstu skjálftar sem vitað er um á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu eru um 7 stig eins og skjálftarnir sem urðu 1755 og 1872.