01.10.2010
Veglegt kaffiboð bæjarstjórnar Fjallabyggðar og Vegagerðarinnar í tilefni af vígslu Héðinsfjarðarganga hefst í Íþróttahöllinni í Ólafsfirði kl. 16:00 á morgun laugardaginn 2. október.
Þar verða m.a. flutt tónlistaratriði og allnokkur ávörp gesta.
Búist er við fjölda fólks í kaffiboðið.
Ákveðið hefur verið að sýna barnaefni í Félagsheimilinu Tjarnarborg Ólafsfirði á sama tíma, þ.e. frá kl. 16:00 á morgun, á meðan borðhald stendur yfir í Íþróttahöllinni.
Barnafólk getur því valið um að vera við borðhaldið og hlýða á það sem þar fer fram, eða horfa á barnaefni í Tjarnarborg með léttar veitingar við hæfi barna.
Skipulagsnefndin.