Hvernig getum við bætt menntun barnanna okkar?

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. (Mynd: menntamalaraduneyti.is)
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. (Mynd: menntamalaraduneyti.is)
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra heldur opna fundi um Hvítbók um umbætur í menntamálum um allt land á næstunni. 
 Hann leggur áherslu á þau meginmarkmið að bæta árangur í lestri, bæta námsframvindu í framhaldsskólum og efla verk- og tækninám. „Framtíðarsýn okkar er að ungt fólk á Íslandi hafi sömu möguleika til þess að lifa og starfa í síbreytilegum heimi og jafnaldrar þess í löndum sem við viljum bera okkur saman við. Til að svo megi verða þarf að veita nemendum á Íslandi tækifæri til menntunar í menntakerfi sem stenst samanburð við það sem best gerist erlendis“. Fundirnir eru öllum opnir og eru kennarar, foreldrar og aðrir sem láta sig menntamál varða velkomnir.

Illugi mætir til Fjallabyggðar á sunnudaginn, 7. sept. og verður á Kaffi Rauðku Siglufiði kl. 12:00