Hvar stoppa ferðamenn?
- Morgunverðarfundur Vegagerðarinnar 21. janúar 2020
Vegagerðin býður til morgunverðarfundar um ferðamenn og áningarstaði á þjóðvegum á Grand hótel þann 21. janúar 2020.
Fjölgun ferðamanna síðasta áratug hefur verið fordæmalaus. Álagið hefur aukist á innviði landsins, ekki síst vegakerfið sem hefur þurft að anna mun meiri umferð en ráð var fyrir gert. Áskoranir eru margar, til dæmis er mikilvægt að fjölga áningarstöðum á þjóðvegum, bæði til að auka þjónustu við ferðamenn og ekki síst til að auka öryggi vegfarenda.
Ferðamenn á þjóðvegum og áningarstaðir verða til umfjöllunar á morgunverðarfundi Vegagerðarinnar í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík, þriðjudaginn 21. janúar klukkan 8.30 til 10. Allir eru velkomnir. Skráningagjald er 2.500 krónur en innifalið er glæsilegt morgunverðarhlaðborð frá klukkan 8 til 8.30. Skráning fer fram á tix.is.
Beint streymi verður frá fundinum á facebooksíðu Vegagerðarinnar.
Fyrirlestrar
Erlendir ferðamenn á bílaleigubílum og hringvegurinn 2010-2018
Rögnvaldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Rannsóknum og ráðgjöf ferðaþjónustunnar (RRF), kynnir niðurstöður rannsókna RRF á þróun umferðar erlendra ferðamanna á bílaleigubílum á tíu stöðum við hringveginn á tímabilinu 2010 til 2018.
Áningarstaðir Vegagerðarinnar
Einar Pálsson forstöðumaður þjónustudeildar Vegagerðarinnar fjallar um áningarstaði Vegagerðarinnar, fjölda þeirra, aðstöðu, upplýsingaskilti og áskoranir vegna aukins fjölda ferðamanna.
Hvar vilja ferðamenn stoppa?
Sóley Jónasdóttir verkefnastjóri á hönnunardeild Vegagerðarinnar segir frá verkefni þar sem kortlagðir voru staðir á og við Hringveginn þar sem ferðamenn stoppa til myndatöku.
Af hverju Norðurstrandaleið?
Björn H. Reynisson verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Norðurlands fjallar um hina nýju Norðurstrandaleið, tilurð hennar, árangur og framtíðarsýn.
Fundarstjóri: G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.