Leggjum okkar að mörkum til aðstoðar Grindvíkingum
Það hefur ekki farið fram hjá neinum það alvarlega ástand sem er uppi hjá vinum okkar í Grindavík. Hugur okkar er hjá þeim og ljóst að erfitt verkefni er fyrir höndum. Því er mikilvægt að við tökum höndum saman og aðstoðum eftir fremsta megni.
Hér í Fjallabyggð er verið að fara yfir hvaða þjónustu og aðstoð við getum boðið fram s.s. varðandi möguleika á plássum í leikskóla, grunnskóla og búsetukjarna.
Þar sem mjög margir eiga frístundahús hér í Fjallabyggð viljum við jafnframt hvetja þá sem geta boðið fram laust húsnæði að skrá það á vef Rauða krossins en þar hefur verið sett upp skráningarblað sem ætlað er þeim sem geta lánað húsnæði til þeirra Grindvíkinga sem eru ekki komnir í húsaskjól.
Fjallabyggð hvetjur alla þá sem mögulega geta aðstoðað með húsnæði að skrá sig.
Smelltu hér til að komast í skráningarblað Rauða krossins.