Kattahreinsun í dag

Mynd: af veraldarvefnum
Mynd: af veraldarvefnum
Kattaeigendur athugið. Í dag, miðvikudaginn 5. nóvember, mun dýralæknir verða í Fjallabyggð og eru kattaeigendur hvattir til að mæta með dýr sín í hreinsun. 
Dýralæknir verður staðsettur að  Námuvegi 11 (Olís portið) í Ólafsfirði milli kl: 13:00 – 15:00 og í áhaldahúsinu Siglufirði milli kl: 16:00 - 18:00

Áríðandi að allir kettir séu hreinsaðir!

Vakin er athygli á því að skilyrði fyrir hreinsun er að búið sé að borga kattaleyfisgjald og tryggingu.
Þeir sem ekki gera grein fyrir köttum sínum, með því að mæta í hreinsun, eða framvísa vottorði að köttur þeirra sé hreinsaður, mega gera ráð fyrir að verða sviptir leyfi til kattahalds.

Eigendur óskráðra katta eru hvattir til að skrá þá sem fyrst ella munu þeir eiga von á frekari aðgerðum.

Dýraeftirlit Fjallabyggðar