Hundahreinsun í dag

Mynd: (http://www.ukbusinessdirectoryltd.co.uk/)
Mynd: (http://www.ukbusinessdirectoryltd.co.uk/)
Vakin er athygli hundaeigenda á því að dýralæknir verður í Fjallabyggð í dag, fimmtudaginn 30. október sem hér segir: 
Námuvegi 11 (Olís portið) Ólafsfirði 30. október 2014 kl: 13:00 – 15:00 
Áhaldahúsinu Siglufirði 30. október 2014 kl: 16:00 - 18:00 

Áríðandi að allir hundar séu hreinsaðir! 

Vakin er athygli á því að skilyrði fyrir hreinsun er að búið sé að borga hundaleyfisgjald og tryggingu. 
Þeir sem ekki gera grein fyrir hundum sínum, með því að mæta í hreinsun, eða framvísa vottorði að hundur þeirra sé hreinsaður, mega gera ráð fyrir að verða sviptir leyfi til hundahalds. 
Dýraeftirlit Fjallabyggðar