Hraðbanki Arion banka á Ólafsfirði bilaður

Hraðbanki Arion banka á Ólafsfirði er bilaður og er verið að vinna í því að laga hann eins og fljótt og auðið er.

Ástæða bilunarinnar er sú að dyrnar að rýminu, þar sem hraðbankinn er staðsettur, lokast ekki, sem hefur leitt til þess að snjór safnast saman í rýminu og utan á hraðbankanum. Eftir hetjulega baráttu við íslensk veðuröfl játuðu tölvan og prentarinn í hraðbankanum sig sigruð gagnvart kuldanum og gáfu upp öndina.

Arion banki biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda viðskiptavinum bankans.