Hlíðarvegur 18 - 20 seldur

Gunnar I. Birgisson og Þröstur Þórhallsson
Gunnar I. Birgisson og Þröstur Þórhallsson

Félag í eigu Þrastar Þórhallssonar, fasteignasala og stórmeistara í skák hefur fest kaup á gamla gagnfræðaskólanum að Hlíðarvegi 18-20 Siglufirði.
Þröstur ætlar að breyta gamla skólahúsnæðinu í íbúðarhús.
Hönnunarvinna verkefnisins er nú í fullum gangi og reiknað er með að framkvæmdir hefjist seini partinn í ágúst.
Þröstur á ættir sínar að rekja til Siglufjarðar. Faðir hans Þórhallur Sveinsson byggingarmeistari er fæddur og uppalin á Siglufirði.

Hér sjást Þröstur Þórhallsson og Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri skrifa undir kaupsamninginn.
Í tilefni þess gaf þröstur Grunnskóla Fjallabyggðar fimm töfl og kennslubækur í skák.
Þröstur reiknar með að vera tilbúinn að grípa í skákkennslu í grunnskólanum í vetur, sem yrði mikill fengur fyrir upprennandi skákmenn skólans.