Hjólreiðakeppni í gegnum Fjallabyggð

Strákagöng
Strákagöng
Föstudaginn 18. júlí verður 4ra ganga-keppnin í hjólreiðum ræst sunnan við Strákagöng og munu hjólreiðamenn hjóla þaðan alla leið til Akureyrar.
Sérstaða Fjallabyggðar er þannig að hvergi annarsstaðar á landinu geta menn hjólað í gegnum 4 jarðgöng á jafn stuttum vegakafla. Keppnin er alls 75 km og nú þegar hafa hátt í 50 hjólreiðamenn skráð sig til leiks. Keppnin hefst kl. 17:00 og eru íbúar
Fjallabyggðar hvattir til að fylgjast með þegar hjólreiðamennirnir bruna í gegnum byggðarkjarnanna og hvetja þá áfram.

Það er Hjólreiðafélag Akureyrar sem stendur fyrir þessum viðburði en núna um helgina er sérstök hjólahelgi hjá félaginu. 
Frekari upplýsingar um keppnina veitir vilberg@hjolak.is Vilberg Helgason 8450601

Heimasíða Hjólreiðafélags Akureyrar, www.hjolak.is