Hjólað fyrir Iðju dagvist

Föstudaginn 24.júní  mun Þórir Kristinn Þórisson, fyrrverandi bæjarstóri Fjallabyggðar koma hjólandi til Siglufjarðar til styrktar  Iðju dagvist.

Okkur langar að sjálfsögðu til þess að taka vel á móti honum eftir þetta langa ferðalag. Hann áætlar að vera á Ketilási kl. 11 og á Siglufirði kl. 14:30.  Móttaka verður fyrir Þórir á torginu kl.14:30.

·        Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri tekur á móti honum

·        Leikskólabörn syngja

·        Sólrún Júlíusdóttir formaður félagsmálanefndar  flytur ávarp

·        Iðja færir Þóri gjöf

Í lok dagskrár verður boði uppá kaffi í húsnæði  Iðju dagvistar.

Hvetjum alla til að hjóla með honum síðasta spölinn

Starfsfólk Iðju dagvistar.