Heimir Sverrisson
Heimir Sverrisson hefur verið ráðinn tímabundið í stöðu yfirhafnarvarðar Fjallabyggðarhafna. Átta umsóknir bárust um starfið sem auglýst var þann 18. september sl.
Heimir er með BSc í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Heimir er með 30 tonna skipstjórnarréttindi og STCW 10 A-VI/1.
Heimir er fæddur og uppalinn á Siglufirði en hefur verið búsettur á Ólafsfirði síðastliðin 6 ár. Frá unga aldri hefur Heimir haft áhuga og tengst störfum í sjávarútvegi, hvort sem er á landi eða sjó og hefur starfað sem sjómaður um árabil.
Undanfarin ár hefur Heimir starfað á sjó sem vinnslustjóri hjá Deutsche Fischfang Union. Þar hefur hlutverk hans um borð m.a. verið stjórnun vakta, þjálfun nýliða, þátttaka í úrbótum vinnsluferla og gæðastjórnun ásamt því að vinna almenn sjómannsstörf.
Heimir mun hefja störf 1. nóvember nk. og bjóðum við hann velkominn til starfa.