Héðinsfjarðargöng lokað vinnusvæði

Af gefnu tilefni vilja verktakafyrirtækin Háfell og Metrostav koma því á framfæri að Héðinsfjarðargöng eru lokað vinnusvæði og umferð óviðkomandi um þau er stranglega bönnuð á öllum tímum og verður svo út framkvæmdartímann. Héðinsfjarðargöng eru enn í fullri vinnslu og eru þungavinnuvélar og önnur stórvirk og sérhæfð tæki enn að störfum við verkið. Verkinu lýkur ekki fyrr en haustið 2010 og er öll óviðkomandi umferð á vinnusvæðinu stranglega bönnuð á verktímanum. Verktaki vill taka það skýrt fram að mjög varasamt getur verið fyrir óviðkomandi að fara inn í göngin þar sem enn á eftir að vinna við vegagerð, fráveituskurði, lokaklæðningar og frágangi á vatnsaga. Beinlínis lífshættulegt getur verið að ferðast um göngin án eftirlits.