27.09.2010
Til sölu er sérdeilis góður
Og sómakær eðalbíll
Svolítið sveittur og móður
Samt mun hér góður díll
Viljugur er hann og vanur
Því vinnan er aðall hans
Útlitið eins og svanur
Í ástleitnum vangadans
SHS
Um er að ræða Toyota Hilux double cab, árg 1994, ekinn 240 þúsund km.
Kauptilboðum skal skilað á skrifstofur sveitarfélagsins fyrir kl. 15:00, 5. október 2010.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H Sigurðarson í síma 464-9177 eða 891-8716.
Skrifstofu- og fjármálastjóri mun taka afstöðu til tilboðanna 6. október 2010.
Fjallabyggð 27. september 2010
Skrifstofu- og fjármálastjóri