Grunnskóli Fjallabyggðar auglýsir lausar stöður

Eftirtaldar stöður eru lausar í Grunnskóla Fjallabyggðar:

Skólaliða vantar í 50% starf við skólann. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Skólaliðastarfið er blandað starf sem felur í sér ræstingu á skólahúsnæði við Tjarnarstíg, Ólafsfirði og gæslu á göngum þess.  Vinnutími er eftir hádegi.

Stuðningsfulltrúa vantar við skólann í 65% starf.  Þarf að geta hafið störf sem fyrst.  Starfið felur í sér aðstoð í bekk og gæslu í frímínútum í yngri deildinni Norðurgötu, Siglufirði. Vinnutími er fyrir hádegi.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum.

Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 464-9150, 845-0467 eða í gegnum netfangið jonina@fjallaskolar.is 

Skólastjóri