Grænlensk menningarvika barna- og unglinga í Fjallabyggð

Grænlandsfáninn
Grænlandsfáninn
Nú stendur yfir grænlensk menningarvika barna- og unglinga í Fjallabyggð. Grænlenskir listamenn koma í heimsókn, sýna grænlenska list og fræða börnin um Grænland, sögu þess og menningu.  

Pauline Motzfeldt sýnir grænlenska söngva og dansa og segir sögu trommunnar. Pauline er kennari og hefur haldið fyrirlestra og námskeið í Danmörku og Grænlandi. Miki Jacobsen er ljósmyndari, myndlistamaður, tónlistarmaður og leikari. Hann gerir m.a. andlitsgrímur eftir grænlenskri hefð. Hann hefur haldið fjölda sýninga, bæði á Grænlandi, Norðurlöndunum og í Kanada.
Fjallabyggð hefur fengið styrk í verkefnið frá Menningarráði Eyþings, Barnamenningarsjóði og Grænlandssjóði.

 

Karítas Skarphéðinsdóttir Neff

Fræðslu- og menningarfulltrúi