Götur sópaðar í Fjallabyggð

Í dag mánudag 25. apríl og næstu daga verða götur sópaðar á Siglufirði.

Fyrst er þjóðvegur í gegnum Siglufjörð sópaður. Því næst verður sópað í Suðurbæ og vinnur sópurinn sig til norðurs.

Búast má við að götusópun vari á bilinu 06:00 – 23:00 þessa daga.

Íbúar eru hvattir til að færa ökutæki sín þegar þeir verða varir við götusópinn í sinni götu/hverfi.

Í kjölfar verður sópað í Ólafsfirði og mun önnur tilkynning birt á vef Fjallabyggðar vegna þess.