Góðgerðarvika Neons

Nú líður að hinni árlegu ferð félagsmiðstöðvarinnar Neons á Samfestinginn og Söngkeppni Samfés sem haldin er í Laugardalshöll í Reykjavík. Ferðin er nýtt til allskonar hópeflis fyrir unglingana. Farið hefur verið í bíó, skemmtigarð o.s.frv.

Unglingar í Neon munu ganga í hús og óska eftir stuðningi bæjarbúa til ferðarinnar dagana 13.-15. mars nk. Á móti vilja unglingar rétta íbúum hjálparhönd og fyrirhuguð er Góðgerðarvika 11.-15. mars.

Í Góðgerðaviku gera unglingarnir í Neon góðverk og kemur ýmislegt til greina svo sem:

  • Setja í poka fyrir fólk í búðinni og bera vörur út í bíl
  • Moka úr tröppum
  • Fara út með hundinn
  • Vaska upp á kaffistofum
  • Þvo glugga
  • Týna rusl i bænum
  • Taka þátt í félagsstarfi eldri borgara
  • Hjálpa til í stofnunum/fyrirtækjum

Fyrirtækjum sem þiggja góðverk er frjálst að styrkja unglingana til ferðarinnar.

Allur stuðningur er vel þeginn.

Þau fyrirtæki eða einstaklingar sem vilja þiggja góðverk hafi samband við Halldóru umsjónarmann Neons á netfangið halldora@fjallaskolar.is  sími 848-0167 í síðasta lagi 4. mars nk.

Fyrstur hringir/sendir – fyrstur fær

Með fyrirfram þökk fyrir stuðninginn
Félagsmiðstöðin Neon