Góð þátttaka á dómaranámskeiði í boccia

Þátttakendur í dansi
Þátttakendur í dansi
Um síðustu helgi voru í heimsókn fulltrúar frá Félagi áhugafólks um íþróttir aldraðra. 
Stóðu þeir fyrir dómaranámskeiði í boccia og kynntir voru dansar í Skálarhlíð.  Um 30 manns tóku þátt í dómaranámskeiðinu og um 40 manns tóku þátt í dönsum og leikfimi.

Bæði námskeiðið og kynningin á dönsunum tókst með afbrigðum vel og voru leiðbeinendur himinlifandi með þátttökuna. 14 eldri borgarar frá Húsavík mættu til Fjallabyggðar og tóku þátt.


Góð þátttaka var á dómaranámskeiðinu í boccia.


Frá danskynningunni í Skálarhlíð