Gnýfari - reiðnámskeiði fyrir börn, unglinga og fullorðna í Ólafsfirði

Hestamannafélagið Gnýfari mun standa fyrir reiðnámskeiði fyrir börn, unglinga og fullorðna í Ólafsfirði.

Einnig verður boðið upp á sameiginlegt námskeið barns og foreldra.

Námskeiðið hefst þann 26. júlí. Leiðbeinandi verður Herdís Erlendsdóttir á Sauðanesi.

Námskeiðsgjald fyrir 5 – 18 ára er kr. 15.000.- fyrir 10 klst.
Systkinaafsláttur.

Námskeiðsgjald fyrir 19 ára og eldri er kr. 20.000.- fyrir 5 klst.

Boðið verður upp á sér kvennahóp og kvennareið í lokin.

Við skráningu tekur Herdís í síma:  6986518 eða á netfangið saudanes@visir.is

Gnýfari er aðili að samningi Fjallabyggðar um frístundarstyrk. Þeir sem ekki hafa nýtt heimsendar ávísarnir eru hvattir til að nýta sér þær.


Æskulýðsnefnd

Hafi einhver áhuga á að komast á hestbak í eitt og eitt skipti þá hikið ekki við að hafa samband við Herdís í s. 6986518.