Mynd: Magnús Magnússon
Gjaldskrá íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar 2019 hefur verið birt og er aðgengileg á heimasíðu Fjallabyggðar undir "Gjaldskrár".
Athygli skal vakin á því að frá 1. janúar sl. geta nú íbúar Fjallabyggðar 67 ára og eldri nýtt aðstöðu í líkamsræktarstöðvum og farið í sund endurgjaldslaust. Sama gildir um öryrkja, búsetta í Fjallabyggð en þeir þurfa að framvísa örorkuskírteini eða staðfestingu á 75% örorku. Við fyrstu komu í íþróttamiðstöðina fá fyrrnefndir aðilar útgefið kort sem þeir svo framvegis sýna við komu í íþróttamiðstöðina.