Garðsláttur í sumar

Nemendur vinnsukóla Fjallabyggðar að störfum í Ólafsfirði
Nemendur vinnsukóla Fjallabyggðar að störfum í Ólafsfirði
Fjallabyggð mun bjóða ellilífeyrisþegum og öryrkjum í Fjallabyggð upp á garðslátt í heimagörðum.

Þeir sem hyggjast nýta sér þessa þjónustu skrái niður nafn og heimilisfang:
Ólafsfjörður á bæjarskrifstofu (464-9200)
Siglufjörður í Ráðhúsi (464-9100)
(ath. sláttur er fyrir þá sem eru með lögheimili í Fjallabyggð)

Ath. ekki er boðið upp á hreinsun í beðum og runnum.

Garðsláttur fyrir litlar lóðir kr. 2.000 og stærri og erfiðari lóðir kr. 2.300.

Nánari upplýsingar veitir íþrótta- og tómstundafulltrúi á bæjarskrifstofu Fjallabyggðar eða í síma 464-9200

Stefán Ragna Hjálmarsson
Skipulags- og byggingarfulltrúi