Fundur vegna jarðskjálfta út af Norðurlandi

Almennur fundur á vegum Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra verður  í Fjallabyggð miðvikudaginn 31.10.2012 klukkan 17:00 í grunnskólanum við Norðurgötu, Siglufirði og í Menningarhúsinu Bergi, Dalvíkurbyggð, sama dag kl. 20:00.

 Fundarefni er jarðskjálftar út af Norðurlandi og verður dagskrá á þessa leið:

·       Kynning  [ Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra]

·        Jarðskjálftar á Norðurlandi, hvað veldur?  [Veðurstofa Íslands og sérfræðingar]

·        Áætlanir, viðbragð [AVD/lögreglustjóri]

·        Hvað getur fólk gert? (Forvarnir, viðbragð, eftirfylgni) [AVD Guðrún Jóhannesdóttir]

·        Næstu skref  [AVD/lögreglustjóri]

Að fundi loknum verða umræður og tekið við fyrirspurnum frá fundarmönnum.