Vakin er athygli á því að fundur um nýsköpun í Fjallabyggð verður í dag, fimmtudaginn 4. desember, kl. 17:00 í Menningarhúsinu
Tjarnarborg. Fundurinn er haldin að frumkvæði Atvinnumálanefndar Fjallabyggðar og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Dagskrá:
- Valur Hilmarsson formaður atvinnumálanefndar Fjallbyggðar býður gesti velkomna.
- Hvað gerir Nýsköpunarmiðstöð Íslands?
- Kynning á verkefninu Ræsingu í Fjallabyggð sem fer af stað á nýju ári
- Að virkja hugann!
- Hvaðan koma hugmyndir?
- Hvernig hægt er að losna úr viðjum vanans og efla sköpunarhæfnina sem býr innra með okkur öllum?
Sigurður Steingrímsson, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands hvetur íbúa Fjallabyggðar til
dáða.
Heitt á könnunni.
Allir sem áhuga hafa á nýjungum í atvinnulífi Fjallabyggðar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Fjallabyggð og Nýsköpunarmiðstöð Íslands