Hunda- og kattaeigendur athugið að varptími fugla er hafinn

Sveitarfélagið Fjallabyggð vill vekja athygli á því að varp fugla er hafið og er þeim tilmælum beint til fólks að taka tillit til þess og vera ekki á ferð um varpsvæðin að óþörfu og alls ekki með hunda. Hundaeigendur eru beðnir um að sleppa ekki hundum sínum lausum á varpsvæðum.
Þeim tilmælum er beint til kattaeigenda að halda köttum sínum innandyra á nóttunni og hengja bjöllur á hálsólar þeirra. Kettir eru öflug dýr sem geta haft neikvæð áhrif á stofn fugla sem verpa í nágrenni við mannabústaði ár hvert og því er mikilvægt að kattaeigendur fylgist með köttum sínum yfir varptíma fugla og á meðan ungar eru að verða fleygir.

Hundaeigendum er bent á m.a. útivistarsvæði í Skútudal yfir sumartímann.

Varpsævði fugla á Siglufirði er kringum Leirurnar, Langeyrartjörn og á tanganum við Innri höfn.
Í Ólafsfirði er það svæðið í kringum Ólafsfjarðarvatn.

Hér er að finna kort af varpsvæði fugla á Siglufirði.