Markaðsstofa Ferðamála á Norðurlandi vill vekja athygli ykkar á sérstökum kynningarfundi um fuglaskoðun á Norðurlandi sem boðað er til miðvikudaginn 18. mars næstkomandi.
Það er Útflutningsráð sem stendur fyrir þessum kynningarfundi í samvinnu við Markaðsstofu Ferðamála á Norðurlandi í tengslum við- og í framhaldi af fundi um fuglaskoðun á Íslandi sem Útflutningsráð stóð fyrir í janúar síðastliðnum.
Dagskrá |
Akureyri 18 mars – Kl: 13:00. Fundarstaður: Veitingastaðurinn Friðrik V ! |
13:00 |
Björn H Reynisson frá Útflutningsráði - Staða verkefnisins og aðkoma Útflutningsráðs |
13:15 |
Jóhann Óli Hilmarsson – Fuglaskoðun á Norðurlandi - möguleikar í fuglaskoðunarferðamennsku |
14:00 |
Ásbjörn Björgvinsson - Aðkoma Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi |
14:10 |
Björn H Reynisson frá Útflutningsráði - Umræður |
15:00 |
Dagskrá lokið |
Við viljum hvetja ALLA áhugasama aðila um fugla og fuglaskoðun til að mæta á fundinn til að kynna sér stöðu verkefnisins og framtíðarmöguleika fuglaskoðunar á Norðurlandi.
Með kærri kveðju
Ásbjörn Björgvinsson