Fugl fyrir milljón

Milljón króna myndin
Milljón króna myndin
Laugardaginn, 8. desember, voru úrslit kynnt og verðlaun veitt í ljósmyndasamkeppninni Fugl fyrir milljón, sem haldin var á vegum Brimnes hótels og bústaða í Ólafsfirði og Rauðku á Siglufirði

3 ljósmyndarar fengu viðurkenningar fyrir myndir sínar., en það var Erlendur Guðmundsson, Akureyri, sem fékk 1.000.000 króna í verðlaun fyrir bestu myndina.

Sigurður Ægisson, Siglufirði, varð í öðru sæti og Einar Guðmann, Akureyri í því þriðja.   Einar vann keppnina síðast og Sigurður varð þá í 3. sæti.  

Keppnin snýst um bestu fuglamyndina tekna á Tröllaskaga, Hrísey, Grímsey, Drangey og Málmey á tímabilinu 14. maí til 31. ágúst, 2012, og er tilgangur hennar að kynna Tröllaskagann og nærliggjandi eyjar, fyrir náttúruunnendum og stuðla að aukinni fuglaskoðun og fuglaljósmyndun á svæðinu.

Myndirnar er hægt að sjá í myndasafninu okkar 

-----

  www.fuglfyrirmilljon.com