Frjó listahátíð 2022 - fréttatilkynning

Alþýðuhúsið á Siglufirði fagnar 10 ára menningarstarfi með sex daga listahátíð og bókarútgáfu.
Frjó afmælishátíð 15. - 20. júlí 2022

Í tilefni 10 ára afmælis menningarstarfs í Alþýðuhúsinu á Siglufirði í umsjá Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur verður efnt til listahátíðar um allan bæ með þátttöku fjölmargra menningaraðila og listamanna. Alþýðuhúsið mun standa fyrir fjölda listviðburða sem munu endurspegla þá grósku og fjölbreytni menningarstarfsins í 10 ár. Þar koma fram listamenn sem hafa
í gegnum árin verið gjöfulir á list sína í okkar samfélagi og einnig aðrir sem leggja sitt af mörkum í fyrsta sinn. Þar má t.d. nefna sýningu Finnboga Péturssonar í Kompunni, gjörninga frá listahópnum Flux Factory frá New York, tónleika með Óskari Guðjónssyni og félögum, tónleika með Eyjólfi Eyjólfsyni og Ragnheiði Gröndal, ljóðalestur Sölva Halldórssonar og heimspekierindi Ásgeirs Berg Matthíassonar um listir.


Alþýðuhúsið býður uppá 10 myndlistasýningar, 6 gjörninga, 8 tónleika og tónlistaratriði, 2. upplestra, stuttmyndasýningu, listasmiðju fyrir börn og aðstandendur, Gong yoga og heimspekifyrirlestur. Bókin um 10 ára starf í Alþýðuhúsinu verður formlega gefin út 15. júlí og fer þá í almenna sölu. Þegar allt þetta kemur saman verður til suðupottur viðburða, samveru og
áhugaverðra samræðna sem gestum er boðið að taka þátt í. 

Dagskrána á vegum Alþýðuhússins og annara menningaraðila í
Fjallabyggð má sjá á heimasíðu Alþýðuhússins www.althyduhusid.com.

Lista- og fræðafólk sem kemur fram á Frjó.
Finnbogi Pétursson
Will Owen
Tommy Nguyen
Sholeh Asgary
Arnar Ómarsson
Freyja Reynisdóttir
Arna Guðný Valsdóttir
Dúfa Sævarsdóttir
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
Arnfinna Björnsdóttir
Eleftheria Katsianou
Bára Kristín Skúladóttir
Eyjólfur Eyjólfsson
Ragnheiður Gröndal
Brák Jónsdóttir
Þórir Hermann Óskarsson
Þórunn Dís Halldórsdóttir
Ásgeir Berg Matthíasson
Rodrigo Lopes
Guito Thomas
Arnljótur Sigurðsson
Katrin Hahner
Magnús Trygvason Eliassen
Tumi Árnason
Magnús Jóhann Ragnarsson
Hróðmar Sigurðsson
Ingibjörg Elsa Turchi
Þórey Ómarsdóttir