Frestur til að skila inn afþreyingu eða annarri dagskrá fyrir börn og unglinga í sumar framlengdur til 26. maí nk. Þeir aðilar sem ráðgera að bjóða upp á afþreyingu eða aðra dagskrá fyrir börn og unglinga í sumar eru eindregið hvattir til að senda upplýsingar um það til Fjallabyggðar (sjá slóð neðar í fréttinni). Mikið berst af fyrirspurnum til Fjallabyggðar um afþreyingu fyrir börn í sumar.
Fyrirhugað er að birta rafrænt yfirlit/dagatal yfir afþreyingu og frístundastarf barna og unglinga í Fjallabyggð sumarið 2021. Með því yrðu upplýsingar um það sem er í boði til afþreyingar og dægrastyttingar fyrir þann aldurshóp aðgengilegar á einum stað á heimasíðu Fjallabyggðar.
Þeir aðilar sem ráðgera að bjóða upp á afþreyingu eða aðra dagskrá fyrir börn og unglinga í sumar eru hvattir til að senda upplýsingar um það á undirritaðar eða rafrænt á vef Fjallabyggðar (Slóð á eyðublað) fyrir 26. maí 2021.
Horft er til afþreyingar eða námskeiða á sviði menningar, lista, íþrótta o.s.frv. Hægt verður að bæta inn í yfirlitið eftir þann tíma en gott að hafa sem mest tilbúið við birtingu yfirlitsins.
Upplýsingar sem þurfa að koma fram:
- Upplýsingar um aðila sem heldur námskeiðið/afþreyinguna
- Heiti og nánari lýsing námskeiðs/afþreyingar
- Tímasetning
- Staðsetning
- Aldur þátttakenda
- Þátttökukostnaður (t.d. æfingagjöld)
- Hvort námskeið verður í boði fyrir börn gesta
Ath! Ekki er átt við staka viðburði s.s. leiksýningar eða slíkt.
Nánari upplýsingar veita:
Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála, netfang: rikey@fjallabyggd.is og Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi, netfang lindalea@fjallabyggd.is
Sími: 464 9100
Eyðublað fyrir skráningu
Auglýsing (pdf)